Krefjandi að eiga tvö börn

Meghan og Harry með Arhcie nýfæddan. Þau eru nýbúin að …
Meghan og Harry með Arhcie nýfæddan. Þau eru nýbúin að eignast litla dóttur. AFP

Harry Bretaprins eignaðist sitt annað barn með eiginkonu sinni, Meghan hertogaynju, í Bandaríkjunum í byrjun júní. Harry er mættur til Bretlands og ræddi fjölgunina á heimilinu þegar verðlaun góðgerðarfélagsins Well Child voru veitt í vikunni. 

Harry sagði tónlistarmanninum Ed Sheeran að það væri krefjandi að vera með tvö börn en blaðamaður Hello heyrði þá tala saman. „Maður þarf að vera með marga bolta á lofti,“ sagði Harry. 

Dóttir Harrys og Meghan heitir Lili eða Lilibeth Diana. Hún er tveimur árum yngri en Archie, sem varð tveggja ára í maí. „Við höfum verið heppin hingað til. Hún er mjög róleg og virðist vera mjög ánægð með það að sitja á meðan Archie hleypur um eins og brjálæðingur,“ sagði Harry við annan gest.

Harry og Meghan búa í Bandaríkjunum.
Harry og Meghan búa í Bandaríkjunum. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert