Börn leikarans Vals Kilmers brostu sínu breiðasta á rauða dreglinum á kvikmyndahátíðinni í Cannes á dögunum þegar heimildarmynd um föður þeirra var forsýnd. Dóttirinn Mercedes sem er 29 ára og sonurinn Jack 26 mættu til Frakklands til að heiðra föður sinn, en þau eru meðframleiðendur að heimildarmyndinni.
Val Kilmer lét lítið fyrir sér fara og leyfði börnunum sínum að njóta sviðsljóssins á rauða dreglinum en hann þjáist af krabbameini í hálsi. Hann deildi stiklu úr heimildarmyndinni á samfélagsmiðlinum Twitter. „Þegar ég skrifa þetta er forsýning á heimildarmyndinni minni að hefjast á kvikmyndahátíðinni í Cannes. Ég er afar þakklátur að hlotnast sá mikli heiður að myndin skuli hafa verið valin á hátíðina. Það er mikil tilhlökkun að fá að deila sögunni minni með ykkur öllum.“
As a lifelong filmmaker it thrills me to say the film will be in theaters July 23. And as a person who also enjoys getting cozy, I'm possibly more happy that it will be on @PrimeVideo Aug 6. Here's to giving every day the opportunity to be the most beautiful of your life. pic.twitter.com/noQ16UB0GN
— Val Kilmer (@valkilmer) July 6, 2021