Orðinn að pabbanum sem segir ekki nei

Ludacris er orðinn að pabbanum sem getur ekki sagt nei …
Ludacris er orðinn að pabbanum sem getur ekki sagt nei við dætur sínar. Skjáskot/Instagram

Rapparinn Ludacris segir að hann sé orðinn að pabbanum sem segir aldrei nei við börnin sín eftir að hann eignaðist fjórðu dótturina. Ludacris og eiginkona hans Eudoxie eignuðust dótturina Chance Oyali 28. júlí. 

Þetta var annað barn þeirra hjóna en en fyrir áttu þau dótturina Cadence sem er 6 ára. Úr fyrri samböndum á Ludacris dæturnar Cai, 7 ára, og Karma sem er tvítug. 

„Hingað til er ég stelpupabbi, ég elska hverja einustu mínútu af því. Ég er orðinn að pabbanum sem kann ekki að segja nei, og ef þær setja upp þessi leiðu andlit er mjög erfitt fyrir mig að vera strangt foreldri,“ sagði Ludacris í viðtali við Page Six.

Ludacris er meira en ánægður með allar fjórar dæturnar og segir það vera gott að eiga dætur þegar kemur fram á efri árin. 

„Þegar maður verður gamall munu stelpurnar hugsa um mann. Vinir mínir hafa sagt mér, að sumir strákar, þegar þeir verða fullorðnir, hugsi þeir að það verði bara í lagi með pabba þeirra,“ sagði Ludacris.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert