Missti mikið blóð í fæðingunni

Cardi B og Offset eignuðust son þann 4. september síðastliðinn.
Cardi B og Offset eignuðust son þann 4. september síðastliðinn.

Tónlistarkonan Cardi B opnaði sig nýverið um erfiða og sársaukafulla fæðingu sem hún gekk í gegnum þegar hún eignaðist nýfæddan son þeirra Offsets. 

Deildi hún hluta af fæðingarsögunni með fylgjendum sínum í sögu á Instagram þar sem hún sagðist hafa misst mjög mikið blóð í fæðingunni. Sagðist hún ekki vera búin að ná sér að fullu, enda sé litli drengurinn aðeins tæplega mánaðar gamall.

Aðdáendur tónlistarkonunnar hafa haft orð á því hversu vel hún lítur út miðað við það að vera nýbökuð móðir og ýmsar getgátur verið á kreiki um mögulegar lýtaaðgerðir. Cardi B stendur keik og vísar slíkum sögusögnum á bug.

„Það er ekki í boði að fara í fegrunaraðgerðir beint eftir að hafa fætt barn. Sérstaklega ekki ég þar sem ég missti svo mikið af blóði og líkaminn er enn að jafna sig,“ sagði söngkonan. Sýndi hún fylgjendum sínum ýmsar stellingar og brellur sem hafa komið henni til góða í feluleiknum við „mömmu-magann“ og látið hana virka grennri á myndum en hún raunverulega er.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert