Getur 11 ára stelpa unnið sér inn 100.000 krónur?

Kvikmyndin Birta eftir Braga Þór Hinriksson er fyrsta leikna barna-og fjölskyldumyndin sem verður frumsýnd hér á landi frá 2018. Þá var Víti í Vestmannaeyjum sýnd við miklar vinsældir en hún er eftir sama leikstjóra. 

Birta er bráðfyndin og hjartfólgin saga um íslenskan raunveruleika sem margir þekkja og tengja við. Sagan gerist í neðra Breiðholti og fjallar um Birtu Bjarkadóttur sem er 11 ára og alin upp hjá einstæðri móður. Móðir hennar vinnur myrkanna á milli til að láta enda ná saman en fyrir slysni heyrir Birta móður sína segja í símann að hún hafi ekki efni á að halda jól. 

Móðir Birtu, sem er hjúkrunarfræðingur, segir að hún þurfi allavega 100.000 krónur til þess að geta haldið mannsæmandi jól fyrir sig og dæturnar tvær. 

Birta tekur þessum fréttum bókstaflega og ákveður að reyna bjarga jólunum fyrir mömmu og litlu systur sína Kötu sem er sex ára. Birta reynir margar leiðir til að afla peninga fyrir mömmu sína og jólin. Fljótlega kemst hún að því að það er heilmikið mál að vera 11 ára og reyna að þéna peninga. 

Saga og handrit myndarinnar er eftir Helgu Arnardóttur og var hún framleidd af fyrirtækinu H.M.S. Productions í samstarfi við Símann, Senu og Kvikmyndamiðstöð Íslands. 

Með aðalhlutverk fara Kristín Erla Pétursdóttir í hlutverki Birtu, Salka Sól Eyfeld í hlutverki móður Birtu og Margrét Júlía Reynisdóttir í hlutverki systur Birtu. Auk þess fara stórleikarar með önnur aukahlutverk í myndinni á borð við Margréti Ákadóttur, Harald G. Haralds, Herra Hnetusmjör, Helgu Brögu Jónsdóttur, Karl Ágúst Úlfsson, Bjarna Snæbjörnsson, Elmu Lísu Gunnarsdóttir, Álfrúnu Örnólfsdóttur, Kristin Óla Haraldsson eða Króla, Hannes Óla Ágústsson og Sigurð Karlsson svo einhverjir séu nefndir. 

Myndin verður sýnd í bíó 5. nóvember en í Sjónvarpi Símans Premium 25. nóvember. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert