Leikkonan Jennifer Lawrence skartaði óléttubumbunni í fyrsta sinn á rauða dreglinum um liðna helgi þar sem hún mætti á frumsýningu á kvikmyndinni Don't Look Up, en hún fer með eitt aðalhlutverkanna í myndinni ásamt stórleikaranum Leonardo DiCaprio.
Lawrence mætti í gylltum síðkjól sem rammaði sífellt stækkandi bumbuna fallega inn. Kjóllinn sem Lawrence klæddist var alger óaðfinnanlegur. Tískurisinn Dior hannaði kjólinn en Lawrence bar óléttuna einstaklega vel í honum og var eins og glóandi gull. Daily Mail greinir frá.
Jennifer Lawrence á von á sínu fyrsta barni með eiginmanni sínum og listmunasalanum, Cooke Maroney, fljótlega á nýju ári en parið hefur ekki gefið út nákvæma dagsetningu á væntanlegri komu barnsins. Þá hafa þau einnig ákveðið að halda leynd yfir kyni barnsins og ekki segja frá því opinberlega.