Myndi aldrei klæðast óléttufötum

Rihanna fer sínar eigin leiðir og það á einnig við …
Rihanna fer sínar eigin leiðir og það á einnig við um meðgöngufatnað. AFP/Mike Coppola

Tónlistarkonan Rihanna er langt gengin með sitt fyrsta barn. Stjarnan þykir hafa breytt leiknum þegar kemur að óléttufatnaði en hún er vön að sýna bera bumbuna og eyðir ekki háum fjárhæðum í sérhannaðan óléttufatnað. 

„Þegar ég komst að því að ég var ólétt hugsaði ég með mér að ég ætlaði ekki að versla í meðgöngudeildinni. Ég biðst afsökunar, það er bara of skemmtilegt að klæða sig upp. Ég ætla ekki að týna þeim hluta af mér af því líkami minn er að breytast,“ segir Rihanna í viðtali við Vogue. 

Meðgögnugallabuxur eru vinsælar meðal óléttra kvenna. Blaðamaður Vogue segir að Rihanna hafi ranghvolt augunum þegar hún var spurð út í buxnategundina vinsælu. Stjarnan segir að hún hafi ekki klæðst meðgöngubuxum áður en hún var ólétt og klæðist þeim því ekki nú þegar hún er ólétt. 

Rihanna er meðvituð um að það sé krefjandi fyrir stílistann hennar að klæða hana fyrir opinbera viðburði. „Ég veit að hann missir úr svefn af því að líkami minn getur bókstaflega breysta frá einum klukkutíma til annars.“

View this post on Instagram

A post shared by badgalriri (@badgalriri)



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert