Kieran Hayler, fyrrverandi eiginmaður glamúrfyrirsætunnar Katie Price, er allt annað en sáttur með sína fyrrverandi og segir hana sýna skeytingarleysi í garð barna þeirra tveggja.
Fyrr í vikunni birti Price myndband í sögu á Instagram sem sýndi son hennar taka upp TikTok myndskeið í aftursæti ökutækis sem var á fullri ferð. Sonurinn, sem er átta ára gamall, var ekki í viðeigandi öryggisbúnaði en það sem verra er, þá var hann heldur ekki með spennt öryggisbelti.
„Svo virðist sem ungfrú Price hafi enn og aftur hunsað lögin í landinu okkar sem kveða á um að tryggja öryggi barna,“ er haft eftir heimildarmanni Hayler sem gaf sig á tal við fréttamiðilinn The Sun. „Kieran er brugðið yfir ábyrgðarleysi Price. Börn þeirra eiga að vera örugg á ferðalögum,“ sagði hann jafnframt og benti á að þetta væri ekki í fyrsta sinn sem Hayler sakar Price um vanrækslu á öryggi barnanna.
„Hann hefur margoft beðið hana um að ábyrgjast það að börnin séu í viðeigandi öryggisbúnaði þegar þau eru með henni í bíl.“
Price og Hayler voru gift á árunum 2013-2011 og eiga tvö yngstu börnin af fimm saman. Sonur þeirra, Jett fæddist árið 2013 og dóttir þeirra, Bunny er einu ári yngri, eða sjö ára.