Með nöfn barna Kardashian á hálsinum

Kim Kardshian og Pete Davidson.
Kim Kardshian og Pete Davidson. AFP

Grínistinn Pete Davidson virðist vera búin að láta húðflúra upphafstafi barna kærustu sinnar, athafnakonunnar Kim Kardashian á hálsinn á sér. Myndir náðust af grínistanum í síðustu viku þar sem sjá mátti glitta í flúrið. 

Kardashian á fjögur börn með fyrrverandi eiginmanni sínum, fjöllistamanninum Kanye West, þau North, Saint, Chicago og Psalm. Af myndunum að dæma er Davidson búinn að fá sér stafarununa KNSCP sem aðdáendur telja að standi fyrir Kim, North, Saint, Chicago og Psalm.

Líkami Davidson er vel skreyttur húðflúrum en síðan hann og Kardashian tóku saman hefur hann meðal annars fengið sér húðflúr með nafni hennar og einnig setninguna „Stúlkan mín er lögfræðingur“ en Kardashian leggur nú stund á lögfræðinám. 

Parið hefur verið saman síðan í október á síðasta ári. Á undanförnum vikum hefur Davidson tekið meiri þátt í fjölskyldulífinu og er byrjaður að kynnast börnum hennar fjórum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert