Dóttir ofurfyrirsætu tekur fyrstu skrefin

Naomi Campell.
Naomi Campell. AFP

Ofurfyrirsætan Naomi Campell fangaði augnablikið þegar dóttir hennar, sem er 13 mánaða, steig fyrstu skrefin nýverið. 

Campell virtist djúpt snortin yfir því hversu hratt einkadóttir hennar er að vaxa og dafna. Deildi hún myndum af fyrstu skrefunum á Instagram en þau eru alltaf stór áfangi í lífi barnafjölskyldna.

„Ástin mín, hjartslátturinn minn, fyrstu gönguskrefin,“ skrifaði Campell við myndafærsluna svo skynja má stolt hennar.

Á myndunum má sjá mæðgurnar haldast í hendur og ganga um fallegan almenningsgarð sem var í fullum skrúða af útsprungnum blómum og trjám. Hver veit nema að litla stúlkan eigi eftir að feta í fótspor móður sinnar og sé að taka sín fyrstu skref í átt að tískupöllunum.  

Færslan vakti mikla athygli og höfðu hátt í milljón manns líkað við hana þegar þetta er skrifað, ásamt þúsund rituðum athugasemdum sem innihéldu mikla ást ef marka má öll lyndistáknin.

Campell eignaðist dóttur sína í maí á síðasta ári og kom barneign hennar öllum að óvörum. Hún hefur ekki viljað opinbera nafn dótturinnar og reynir eftir fremsta megni að halda henni fjarri sviðsljósinu. 

View this post on Instagram

A post shared by Naomi Campbell (@naomi)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert