Ástrós og Adam eiga von á barni

Adam Karl Helgason og Ástrós Traustadóttir eiga von á barni …
Adam Karl Helgason og Ástrós Traustadóttir eiga von á barni saman. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Dans­ar­inn og raunveruleikastjarnan Ástrós Trausta­dótt­ir og kær­asti henn­ar Adam Karl Helga­son eiga von á barni. Þetta er fyrsta barn parsins saman. 

Ástrós og Adam greina frá þessu á Instagram í dag og birtu fallegar myndir af ströndinni. Þau eru stödd á Grikklandi um þessar mundir. 

Ástrós er dansari og hefur meðal annars verið í þáttunum Allir geta dansað. Hún er nú í raunveruleikaþáttunum LXS sem sýndir eru á Stöð 2. 

Parið hefur verið saman síðan 2021 en þau fluttu saman í desember sama ár. 

Barnavefurinn óskar þeim innilega til hamingju!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert