Spennir magavöðvana á snekkju

Ronaldo er duglegur að sýna sig.
Ronaldo er duglegur að sýna sig. Skjáskot/Instagram

Fótboltakappinn Christiano Ronaldo ferðast nú um frönsku revíeruna á snekkju sinni. Með honum í för er kona hans og fjögur börn þeirra. Þau hafa verið dugleg að birta myndir af sér á samfélagsmiðlum, fáklædd að njóta góðs veðurs. Snekkjan er ekki af verri endanum en talið er að hún kosti um 5,5 milljónir punda. 

Ronaldo er hress og hikar ekki við að birta skemmtilegar myndir af sér fáklæddum. Í einni færslunni biður hann fylgjendur sína að velja annað hvort sig eða útsýnið. Svörin eru af misjöfnum toga. Sumir vissulega velja hann, aðrir kjósa frekar útsýnið eða jafnvel skrautlegu púðana á myndinni.

View this post on Instagram

There are only two options: the view or ME. I let you choose your favorite one?! 🤔😅

A post shared by Cristiano Ronaldo (@cristiano) on Aug 14, 2020 at 3:14am PDT

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert