Í fjölskyldufríi með nýjan kærasta

Kaia Gerber er í fjölskyldufríi með nýjan kærasta með í …
Kaia Gerber er í fjölskyldufríi með nýjan kærasta með í för. AFP

Fyrirsætan Kaia Gerber er í fríi með foreldrum sínum, fyrirsætunni Cindy Crawford og Rande Gerber, í Los Cabos í Mexíkó um þessar mundir. Með henni í fjölskyldufríinu er nýi kærastinn hennar, leikarinn Jacob Elordi. 

Elordi hefur verið að gera það gott síðastliðin ár en hann sló í gegn í Netflix-kvikmyndunum The Kissing Booth 1 og 2 auk þáttanna Euphoria. 

Gerber og Elordi hafa aðeins verið í sambandi í nokkrar vikur en fyrst sást til þeirra saman 1. september síðastliðinn í Malibu. Þau sáust einnig saman í New York í september. 

Elordi var áður í sambandi með mótleikkonu sinni úr The Kissing Booth, Joey King, frá 2017 til 2018. Seinna var orðrómur um að hann væri í sambandi með annarri mótleikkonu sinni, Zendayu, en þau leika saman í þáttunum Euphoria.

Jacob Elordi er með Gerber í fjölskyldufríi í Mexíkó.
Jacob Elordi er með Gerber í fjölskyldufríi í Mexíkó. Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert