Williams kúkaði á sig í flugi

Robbie Williams.
Robbie Williams. mbl

Tónlistarmaðurinn Robbie Williams rifjaði upp sína verstu ferðasögu á dögunum. Hann greinir frá því þegar hann ætlaði að laumuprumpa um borð í flugvél en varð fyrir því óhappi að kúka á sig.

Williams og eiginkona hans Ayda Field voru gestir í hlaðvarpsþættinum The Secrets Out. Þar sagði hann kúkasöguna. 

„Ég er mjög góður í að prumpa ekki í almenningsflugi núna. Allavega, ég þurfti að losa mig við loft. Og það sem ég geri svo að enginn heyri í mér er: Ég er með hálfgerðan „tveggja fingra hljóðdeyfi“ þar sem ég lyfti upp rasskinninni. Lyfti og hálftoga rasskinnina. Það er mjög góður hljóðdeyfir. Ég er 45 ára. Ég er mjög góður í þessu núna. Allavega, ég tosa rasskinnina, læt vaða og skít í höndina á mér. Sem betur fer fór ekkert í áklæðið.“ 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka