Strandhúsið í heitustu þáttum ársins á Airbnb

Nicole Kidman og Hugh Grant fara með aðalhlutverkin í The …
Nicole Kidman og Hugh Grant fara með aðalhlutverkin í The Undoing.

Það eru margir límdir yfir Nicole Kidman og Hugh Grant í þáttunum The Undoing þessar vikurnar. Nú er hægt að gista í strandhúsinu sem kemur við sögu í þáttunum vinsælu. Hægt er að leigja húsið, sem er í New York-ríki, í gegnum Airbnb.

Nóttin kostar 1.300 bandaríkadali eða rúmlega 160 þúsund krónur. Einhverjum kann að þykja það mikið en þó er pláss fyrir 13 manns í húsinu. Það eru sex svefnherbergi, sjö rúm og fjögur baðherbergi. Húsið var byggt árið 1893 og upphaflega byggt sem skáli fyrir strandverði. 

Danski leikstjórinn Susanne Bier leikstýrir þáttunum og í viðtali við Architectural Digest sagði hún að mikið af þeim húsgögnum sem voru í húsinu hefði verið notað í þáttunum í stað þess að breyta alveg um. Stóll sem Kidman situr í úti á verönd var til dæmis í einu herbergjanna. 

Skjáskot/Airbnb
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert