Fór með nýju kærustunni til Havaí

Shana Burgess og Brian Austin Green njóta lífsins á Havaí.
Shana Burgess og Brian Austin Green njóta lífsins á Havaí. Samsett mynd

Leikarinn Brian Austin Green tók á móti nýja árinu í sólinni á Havaí. Með honum í fríinu er dansarinn Shana Burgess en hafa þau sést láta vel hvort að öðru á ströndinni á eyjunni Kona á Havaí. 

Green var gripinn glóðvolgur á flugvellinum með nýju kærustunni á jóladag en það var í fyrsta skipti sem hið nýja par sást saman. 

„Þau eru að hittast og hafa gaman. Þau eru núna í fríi saman. Brian fannst gott að komast frá Los Angeles í nokkra daga,“ sagði heimildarmaður People

Green og Burgess hafa bæði birt myndir úr fríinu á Instagram. Burgess virðist njóta sín vel á Havaí og sagði fríið það besta sem hún hefði upplifað. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert