Fundu ástina á toppi Snæfellsjökuls

Sigríður Arna og Guðni Freyr eru á því að skemmtilega …
Sigríður Arna og Guðni Freyr eru á því að skemmtilega fólkið sé í útivist á Íslandi.

Guðni Freyr Sigurðsson og unnusta hans Sigríður Arna Sigurðardóttir vilja hvetja fólk til að ferðast um landið og að stunda útivist um páskana. Þau segja alla jákvæða á fjöllum og hafa í raun aldrei hitt neinn leiðinlegan á úti í náttúrunni. 

Sigríður Arna Sigurðardóttir, eigandi Húðarinnar Skin Clinic, og Guðni Freyr Sigurðsson, eigandi Viðhalds og nýsmíði, kynntust á rómantískan hátt á toppi jökuls árið 2014. Þau hafa nú trúlofað sig og áætla að gifta sig í sumar ef kórónuveiran leyfir.

„Við kynntumst á toppi Snæfellsjökuls og það var eitthvað við fyrsta skiptið sem við hittumst sem erfitt er að gleyma. Ég var að aðstoða vin minn Jón Inga hjá Amazing Tours að fara með hóp af fólki á topp jökulsins. Við vorum að draga fólk upp á topinn í litlum hópum þegar ég sá Sigríði Örnu fyrst. Ég var þarna samt aðeins undir fjölsku flaggi því e´g er ekki mesti fjallagarpur sem til er,“ segir Guðni.

Guðni Freyr er góður í að skreyta hefðbundnar náttúrumyndir með …
Guðni Freyr er góður í að skreyta hefðbundnar náttúrumyndir með skemmtilegum uppákomum.

Guðni mesti grallari sem hún hefur kynnst

Sigríður Arna segir Guðna sá allra mesta grallara sem hún hafi kynnst og kannski ekki sá besti til að stilla sér upp þegar hún er að taka ljósmyndir úti í náttúrunni.

„Já, Guðni er mesti grallari sem ég veit um þegar kemur að náttúrumyndum enda eru nær allar ljósmyndirnar sem ég tek af honum þar sem hann er annaðhvort standandi á haus eða á annarri hendi.“

Guðni segir það vera út af því að íslenska náttúran sé falleg en ekki svo skemmtileg að ekki megi aðeins krydda ljósmyndirnar.

Sigríður Arna og Guðni Freyr ætla að stunda útivist um …
Sigríður Arna og Guðni Freyr ætla að stunda útivist um páskana.

Samvera í útivist er lykillinn að farsælu sambandi

Sigríður Arna segir að hún elski að fara á fjöll og að hreyfa sig dags daglega.

„Að ganga á fjöll er eitt stærsta áhugamál mitt. Ég hélt reyndar að Guðni væri algjör fjallagarpur en ég held að ég sé fjallagarpurinn í þessu sambandi,“ segir Sigríður Arna.

Guðni hefur gaman af snjósleðaferðum, skíðum, golfi og að keyra mótorhjól. Á meðan Sigríður Arna hefur gaman af því að fara með hundana sína út að ganga og þróaði í raun hæfni sína til að fara út í náttúruna þegar hún var með börnin sín ung. Hún gaf á sínum tíma út tvær útivistabækur fyrir fjölskyldur.

„Við erum mjög góðir vinir og af þeim sökum þá höfum við mæst á miðri leið. Við elskum bæði golf og því er það eitthvað sem við gerum mikið saman. Við förum á skíði, út að ganga og svo nær hún af og til að draga mig í fjallgöngur og hellaskoðanir. Svo er Sigríður Arna oft til í að sitja aftan á mótórhjólinu mínu.

Það sem við erum bæði að upplifa í fyrsta skiptið er að vera í sambandi þar sem okkur langar meira að vera saman og gera eitthvað skemmtilegt í stað þess að vera ein með okkar eigin áhugamál,“ segir Guðni.

Guðni Freyr bregður á leik í brekkunum.
Guðni Freyr bregður á leik í brekkunum.

Ánægð með að þau hafi tekið sér góðan tíma að kynnast

Sigríður Arna er þakklát fyrir að þau hafi tekið sér góðan tíma að kynnast.

„Við keyptum okkur hús saman en erum bara nýbyrjuð að búa. Fyrstu árin héldum við tvö heimili, þá aðallega út af börnunum okkar. Við eigum samtals sex börn samanlagt. Við vildum gera þetta rétt, rólega og í takt við þarfir allra í kringum okkur.

Ég hef mikinn áhuga á ljósmyndum og elska að vera úti. Fyrir bæði okkar er mikilvægt að vera úti því við vinnum mikið og þurfum að slaka á inn á milli.

Það sem ég kann að meta við útiveruna er að maður heldur sér í formi og síðan lítur maður aldrei eins vel út eins og eftir að maður hefur verið úti að leika sér. Það er í raun og veru besta fegrunarmeðalið sem ég veit um að vera úti að gera það sem maður hefur gaman af,“ segir Sigríður Arna.

Guðni er sammála því og hlakkar til páskanna með henni. Þau ætla að fara þangað sem veðrið er gott og vonar hann að veðrið verði best á Akureyri.

„Planið er að fara á skíði og á vélsleða. Að borða góðan mat og síðan bara að hafa gaman. Okkur finnst ótrúlega gaman saman og fórum við sem dæmi síðasta sumar í ferðalag um landið og spiluðum á öllum gólfvöllum sem við fundum við þjóðveginn.

Það var ótrúlega gaman. Af öllu því sem ég gæti verið að gera, þá hefði ég aldrei trúað því að ég myndi elska golf svona mikið,“ segir Guðni.

Hitta eingöngu jákvætt fólk í útivist

Bæði vilja þau hvetja fólk til að ferðast um landið og uppgötva allar þær fallegu perlur sem landið hefur upp á að bjóða.

„Eitt er víst að maður hittir ekki leiðinlegt fólk í golfi, ekki heldur í útivist. Það eru allir jákvæðir á fjöllum,“ segja þau.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert