Páll Óskar og Bríet á Kótelettunni

Páll Óskar kemur fram á Kótelettunni í ár.
Páll Óskar kemur fram á Kótelettunni í ár. mbl.is/Á​sdís Ásgeirs­dótt­ir

Tónlistarfólkið Páll Óskar, Bríet og Herra Hnetusmjör munu troða upp á tónlistarhátíð Kótelettunnar sem haldin verður á Selfossi dagana 9. til 11. júlí. Hátíðin hefur aldrei verið glæsilegri að sögn aðstandenda en hátt í 20 tónlistarmenn- og konur munu koma fram á tveimur sviðum.

Auk þeirra þriggja munu Stuðlabandið, Sprite Zero Klan, Love Guru, GDRN ásamt hljómsveit, Jói Pé & Króli, Ingó Veðurguð, DJ Rikki G auk fjölda annarra stíga á stokk á hátíðinni. „Við erum mjög ánægð með valið á listamönnum. Þetta er fjölbreyttur og flottur hópur listamanna sem mun stíga á svið. Eftirvæntingin er gríðarleg," segir Einar Björnsson, framkvæmdastjóri hátíðarinnar.

Kótelettan er nú haldin í ellefta skipti. Hátíðin átti að fara fram dagana 11.-13. júní næstkomandi. Í ljósi gildandi sóttvarnalaga var ákveðið að færa hana aftur um einn mánuð eða til 9. til 11. júlí þegar, samkvæmt áætlun stjórnvalda, á að vera búið að aflétta öllum takmörkunum innanlands. Miðasala á hátíðina hefst í dag klukkan 18:00 á Kótelettan.is þar sem einnig verður hægt að nálgast nánari upplýsingar og dagskrá hátíðarinnar í ár.

Bríet verður á Selfossi í júlí.
Bríet verður á Selfossi í júlí. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert