Marín Manda Magnúsdóttir, fatahönnuður og meistaranemi, og sambýlismaður hennar Hannes Frímann Hrólfsson, framkvæmdastjóri Kviku eignastýringar, njóta þess að ferðast erlendis um þessar mundir.
Eftir stutt stopp í Danmörku er parið komið til Ítalíu með dóttur sína. Marín Manda hefur verið dugleg að birta myndir frá ferðalaginu á instagrammi sínu en hún er einnig vinsæll áhrifavaldur. Hún hefur meðal annars birt myndir frá Como-vatni og bænum Bellagio við vatnið fallega.
Hið vinsæla Como-vatn heillar marga. Hollywoodstjarnan George Clooney á hús við vatnið auk þess sem Gylfi Þór Sigurðsson knattspyrnumaður og Alexandra Helga Ívarsdóttir giftu sig í lúxusvillu við vatnið.