Áhrifavaldurinn Sólrún Diego nýtur lífsins um þessar mundir í Barselóna á Spáni. Sólrún er í fríi með móður sinni á Spáni Ernu Karen Sigurbjörnsdóttur, en Sólrún bauð henni út í tilefni af 50 ára afmæli hennar.
Mæðgurnar flugu út með flugfélaginu Play fyrr í vikunni. Þær hafa varið síðustu dögum í að flakka um borgina og skoða helstu ferðamannastaðina. Í gær snæddu þær á veitingastaðnum Bao Bao í miðborginni.
Eins og sönnum Íslendingum sæmir eru þær líka búnar að skella sér í H&M en Sólrún sýndi frá pokum úr versluninni á Instagram í dag.