Furðulegt kartöfluhótel í sveitinni í Idaho

Kartöfluhótel í Idaho í Bandaríkjunum.
Kartöfluhótel í Idaho í Bandaríkjunum. Ljósmynd/Airbnb

Stóra kartöfluhótelið fyrir utan Boise í Iadaho ríki í Bandaríkjunum er ein af furðulegustu gististöðunum sem eru til útleigu á leigumiðlunarvefnum Airbnb

Hótelið er í laginu eins og stór kartefla og í því er eitt herbergi með hjónarúmi og lítilli setustofu. Baðherbergið er étt fyrir utan en engir gluggar eru á kartöflunni. Rafmagn og lítill ísskápur eru í kartöflunni. 

Kartöfluhótelið ferðaðist um 48 ríki Bandaríkjanna á sjö árum en nú er það komið til að vera fyrir utan Boise í Idaho. 

Nótt í kartöflunni kostar um 400 bandaríkjadali eða um 50 þúsund krónur íslenskar.

Kartaflan er ansi smekklega innréttuð.
Kartaflan er ansi smekklega innréttuð. Ljósmynd/Airbnb
Ljósmynd/Airbnb
Salernið er rétt fyrir utan kartöfluna.
Salernið er rétt fyrir utan kartöfluna. Ljósmynd/Airbnb
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert