Hreyfill brotnaði og fór inn um glugga

Hluti hreyfilsins fór inn um gluggann.
Hluti hreyfilsins fór inn um gluggann. Ljósmynd/Twitter

Fugl flaug inn í hreyfil vélar flugfélagsins Airlink á dögunum með þeim afleiðingum að hreyfillinn brotnaði í sundur og hluti hans fór inn um farþegaglugga. Engan sakaði, hvorki farþega né áhöfn, og lenti vélin örugglega á flugvellinum í Venetia Mine í Suður Afríku. 

Vélin var á leið frá Jóhannesarborg í Suður-Afríku og átti ekki langt eftir til Venetia Mine þegar atvikið átti sér stað. 

Töluverðar skemmdir urðu á vélinni að sögn flugfélagsins líkt og myndir sem einn farþeganna birti á Twitter sýna. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert