300 fm lúxusíbúð í skandínavískum stíl

Í Antwerpen í Belgíu er að finna einstaka 300 fm loft-íbúð í skandínavískum stíl. Íbúðin er hönnuð af arkitektinum Jo Peeters, en hönnunin er tímalaus og leyfir hverju smáatriði að njóta sín. 

Íbúðin hefur afar róandi og stílhreint yfirbragð, en stofa og borðstofa eru samliggjandi í björtu alrými. Ljóst og afar sjarmerandi parket er á gólfum sem gefur rýminu mikla mýkt, en það er svo lofthæðin og stórir gluggar sem setja punktinn yfir i-ið. Frá borðstofu er inngengt inn í snoturt eldhús með glæsilegri innréttingu úr stáli. 

Í íbúðinni eru fjögur svefnherbergi og þrjú baðherbergi, en í svefnherbergjunum er einfaldleikinn í forgrunni sem skapar notalega stemningu. Þá eru ljósir litir áberandi í húsmunum ásamt brúnum tónum. 

Íbúðin er til leigu á Airbnb, en þar er pláss fyrir allt að átta gesti hverju sinni. Nóttin þar yfir vetrarmánuðina kostar í kringum 340 Bandaríkjadali, eða um 50 þúsund krónur. 

Ljósmynd/airbnb.com
Ljósmynd/airbnb.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert