Það væsir ekki um knattspyrnumanninn Hörð Björgvin Magnússon og Móeiði Lárusdóttur, en þau eru stödd í sannkölluðu lúxus foreldrafríi á Bahamaeyjum.
Hörður og Móeiður eiga saman tvær dætur, þær Matteu Móu og Mörlu Ósk. Þau hafa verið búsett víðsvegar um heim en eru í dag búsett í Aþenu í Grikklandi þar sem Hörður spilar með gríska knattspyrnufélaginu Panathinaikos.
Móeiður hefur verið dugleg að sýna frá ferðalagi þeirra, en af myndum að dæma eru þau að njóta Bahamaeyja til hins ýtrasta. Það vantar ekki upp á fegurðina á hinni suðrænu eyju, en þar er orðið ansi heitt í maímánuði og er meðalhitinn um 29°C.
Þá birti Móeiður einnig glæsilega mynd af sér með yfirskriftinni: „Komin til paradísar.“