Frumsýndi soninn og biðlar til almennings

Eva með kúluna skömmu fyrir fæðingu fyrsta barns síns.
Eva með kúluna skömmu fyrir fæðingu fyrsta barns síns. AFP

Leikkonan fræga, Eva Longoria, varð á dögunum móðir í fyrsta sinn. Hún og eiginmaður hennar José „Pepe“ Bastón eignuðust soninn Santiago Enrique Bastón þriðjudaginn 19. júní síðastliðinn.

Eva sendi frá sér tilkynningu í vikunni, þar sem hún þakkaði aðdáendum sínum fyrir fallegar kveðjur í garð sonarins en nýtti jafnframt tækifærið til að koma á framfæri mikilvægum skilaboðum.

„Halló heimur! Ég kynni ykkur fyrir Santiago Enrique Bastón. Þakka ykkur öllum fyrir heillaóskirnar! Sérstakar þakkir fara til @usahola,“ hóf Eva Instagram-pistil sinn.

Hún hélt svo áfram: „Í ljósi fæðingar sonar míns vil ég beina athygli ykkar að þeim fjölskyldum sem hafa verið aðskildar við landamærin (Bandaríkin-Mexíkó).

„Þar sem ég sit hér með son minn, get ég ómögulega ímyndað mér hversu sárt það er að láta taka barnið sitt frá sér.

„Fólk innan fjölskyldu tilheyrir hvert öðru innbyrðis – og því verðum við að gera allt sem í okkar valdi stendur til þess að sameina þær á ný.“

 Heimild: Mummypages.ie



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert