Uppeldi er endalaust verkefni foreldra með ung börn. Reyndar svo að foreldrum með fullvaxin börn reynist stundum svolítið erfitt að sleppa af þeim hendinni og hætta að ala þau upp, jafnvel eftir að þau eru flutt að heiman. Sennilega eru fá verkefni eins krefjandi og að ala upp barn því það er ekki til nein töfrauppskrift.
Á vef landlæknisembættisins má finna góð almenn uppeldisráð í bland við aðrar nytsamlegar upplýsingar. Þar segir meðal annars:
„Uppeldi barna er málefni sem stöðugt er til umræðu, hjá foreldrum, innan skólanna og meðal fræðimanna. Lengi hefur verið leitað svara við því hvernig heppilegast sé að haga uppeldi barna og hvaða aðferðir dugi best. Gjarnan er kvartað yfir því að börn séu ekki nógu vel upp alin, séu óöguð, erfið og óþekk. Jafnframt heyrist það lífseiga viðkvæði að heimur versnandi fari hvað þetta varðar. Vissulega er rétt að í nútímasamfélagi er eitt og annað óhagstætt velferð barna og ýmsar nýjar ógnir sem steðjað geta að. T.d. má nefna sífellt meiri hraða og sókn í efnisleg gæði, svo og aukið aðgengi að sjónvarpsrásum og veraldarvef.“
Á vefnum er bent á að tímaskortur foreldra sé versti óvinurinn í uppeldi auk þess sem óöryggi þeirra spili einnig inn. „Hvernig á t.d. að kenna börnum að vera kurteis, að leika sér sjálfstætt, að geta deilt með öðrum og geta sofnað sjálf? Og hvað á að gera þegar börn taka reiðiköst í búðinni, bíta önnur börn, skemma leikföngin sín eða suða og rella endalaust? Á hvaða aldri barnsins er hægt að byrja að ala það upp?“
Bent er á að vísindalegar rannsóknir síðustu áratugi hafi fært okkur aukna þekkingu á þroska barna og áhrifum uppeldisaðferða og annarra umhverfisþátta á þau. Því liggur nú fyrir staðgóð vitneskja um hvaða aðferðir í uppeldi eru helst vænlegar til árangurs sem foreldrar geti nýtt sér.
Á vefnum segir m.a.:
Hér má sjá greinina á vef landlæknisembættisins