Viltu eiga svona lítið Gucci-barn?

Ítalska tískuhúsið Gucci nýtur ákaflega mikilla vinsælda um þessar mundir. Það eru þó ekki bara mömmurnar og unglingarnir sem sjást í merkinu heldur er það alltaf að verða sterkara og sterkara í barnafötunum. 

Hausttískan hjá Gucci Kids er lífleg og í stíl við það sem tískuhúsið er að gera í fullorðinsfötum. Hægt er að fá barnatöskur með mónógrammi Gucci, bara örlítið barnalegra, og í línunni eru líka barnaskór með stálspennu ofan á ristinni eins og er vinsælt hjá mömmunum. 

Að sjálfsögðu má deila um það hvort það sé siðferðilega rétt að kaupa Gucci-föt á börnin sín eða ekki. Hver og einn verður að gera það upp við sig. En alla vega. Sama hvað hver segir þá er ekki hægt að þræta um eitt – þessi föt eru falleg! 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert