Er barn Beyoncé eingetið?

Blue Ivy Carter er nauðalík móður sinni á sama aldri.
Blue Ivy Carter er nauðalík móður sinni á sama aldri. beyonce.com

Tónlistarkonan Beyoncé birti skemmtilega mynd af sér og elstu dóttur sinni Blue Ivy Carter á Instagram. Þar er mynd af Beyoncé þegar hún var á sama aldri og Blue er núna skeytt saman við mynd af Blue. 

Blue hefur oft verið talin líkari föður sínum, rapparanum Jay-Z, en kemur á daginn að nokkur líkindi eru með þeim mæðgum á sama aldri. Blue varð 7 ára 7. janúar síðastliðinn. Séu lesendur, líkt og blaðamaður, í einhverjum vafa hvor er hvað, þá er Blue til hægri og Beyoncé til vinstri.  

View this post on Instagram

Someone made this comparison of me at age 7 and Blue at age 7. My baby is growing up. 🥰

A post shared by Beyoncé (@beyonce) on Jan 24, 2019 at 5:47pm PST

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert