Lúðvík bræðir á jólakorti Vilhjálms og Katrínar

Hertogahjónin af Cambridge þau Vilhjálmur og Katrín með börn sín …
Hertogahjónin af Cambridge þau Vilhjálmur og Katrín með börn sín Georg, Lúðvík og Karlottu á jólakorti ársins 2020. AFP

Vilhjálmur Bretaprins og Katrín hertogaynja sendu frá sér jólakort í vikunni. Hertogahjónin af Cambridge stilltu sér upp úti með börnum sínum þeim Georg prins, Karlottu prinsessu og Lúðvík litla prins en myndin var tekin á sveitasetri þeirra í Norfolk á Englandi. 

Öll fjölskyldan brosir sínu breiðasta á myndinni. Það er yngsta barn hjónanna, hinn tveggja ára gamli Lúðvík, sem stelur senunni. Á myndinni má sjá Lúðvík nánast öskra af gleði á meðan fjölskylda hans virkjar vel þjálfaða brosvöðvana. 

„Hertoginn og hertogaynjan eru ánægð með að deila nýrri mynd af fjölskyldunni sem er einnig á jólakorti þeirra í ár,“ stóð í tilkynningu Kensingtonhallar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert