Erna Kristín og Bassi eiga von á tvíburum

Mikil hamingja hjá þeim Ernu Kristínu og Bassa.
Mikil hamingja hjá þeim Ernu Kristínu og Bassa. Skjáskot/Instagram

Samfélagsmiðlastjarnan og guðfræðingurinn Erna Kristín Stefánsdóttir og sambýlismaður hennar, Bassi Ólafsson, tilkynntu á Instagram nú fyrir stundu að þau eigi von á tvíburum. Fyrir eiga þau saman soninn Leon Bassa Bassason sem fæddur er árið 2014. 

Erna Kristín segir glaðninginn vera óvæntan, þá sérstaklega þar sem um tvíbura er að ræða. En hamingjan sé í staðinn margföld.

„Lífið ... eina sekúnduna veit ég ekkert hvert ég er að stefna. Hina þá ofplana ég lífið frá A-Ö til þess að sannfæra sjálfan mig að allt sé að sigla í rétta átt. Þá þriðju kemur óvæntur glaðningur sem breytir öllum þessum plönum,“ segir Erna Kristín við myndafærsluna á Instagram. „Fjölskyldan stækkar ... & ekki bara um eitt heldur eru TVÍBURAR á leiðinni,“ segir hún jafnframt, og segist í raun enn vera að melta fréttirnar.

Barnavefurinn óskar fjölskyldunni hjartanlega til hamingju með barnalánið!

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert