Braut vítahring Barrymore-fjölskyldunnar

Drew Barrymore heiðrar nafn fjölskyldunnar með að vera edrú.
Drew Barrymore heiðrar nafn fjölskyldunnar með að vera edrú. AFP

Drew Barrymore segist vera stoltust af því að hafa hætt að drekka áfengi. 

Ákvörðunina tók hún fyrir fimm árum því hún vildi brjóta vítahring misnotkunar á áfengi innan fjölskyldu hennar. 

„Þetta er eitt það besta sem ég gat gert til þess að heiðra nafn fjölskyldu minnar,“ sagði Barrymore í viðtali við People. 

„Veistu hvað? Þetta virkaði ekki fyrir okkar fjölskyldu og ég ætla að segja stopp. Ég ætla að vera sú sem brýtur hlekkinn og kannski kemur það börnum mínum til góða.“

Áfengissjúkdómurinn hefur fylgt fjölskyldu Barrymore lengi. Faðir hennar þjáðist af sjúkdóminum sem og afi hennar, John Barrymore leikari en hann drakk sig í hel.

„Við þurfum að veita þessum genatískum göllum sem fylgja fjölskyldum ákveðið viðnám.“

Barrymore sagði að fyrsta árið edrú hafi verið erfitt. „Vandamálin hverfa ekki þó að maður hætti að drekka. Það er margt sem þarf að vinna í. Þetta er leið til þess að heiðra sig og vera samkvæmur sjálfum sér. Búa til pláss í lífinu fyrir aðra hluti. Finna út, með meðvitund, hvaða hlutir þetta eru.“ 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert