„Og þá erum við fimm“

Þórdís Björk Þorfinnsdóttir og Júlí Heiðar Halldórsson eignuðust stúlku 9. …
Þórdís Björk Þorfinnsdóttir og Júlí Heiðar Halldórsson eignuðust stúlku 9. maí.

Listaparið Þórdís Björk Þorfinnsdóttir og Júlí Heiðar Halldórsson eignuðust dóttur 9. maí. Parið greindi frá fæðingu dóttur sinnar á samfélagsmiðlum í dag. 

Stúlkan litla er fyrsta barn foreldra sinna saman. 

„Þessi gullfallega hárprúða stúlka mætti í heiminn 9. maí og hefur stækkað hjörtu okkar allra um nokkur númer. Þeim mæðgum heilsast báðum vel, bræður yfir sig spenntir og glaðir að fá litlu systu loksins í heiminn,“ skrifar Júlí í færslu en hann á fyrir einn son og Þórdís Björk á einnig fyrir einn son.

„Ég er ástfanginn, hamingjusamur, stoltur en umfram allt þakklátur. Takk fyrir að auðga lífið mitt með húmor, ást og umhyggju og þessari gullfallegu stúlku sem límir saman síðustu ár. Nýr og spennandi kafli hafinn,“ skrifar Júlí að lokum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert