Óvenjulegt þema í steypiboði

Ireland Baldwin og RAC héldu heldur óvenjulegt steypiboð.
Ireland Baldwin og RAC héldu heldur óvenjulegt steypiboð.

Fyrirsætan Ireland Baldwin og kærasti hennar RAC héldu steypiboð á dögunum og buðu vinum sínum og fjölskyldu að koma og fagna ófæddu barni þeirra saman. Þema veislunnar var strippklúbbur sem verður að teljast heldur óhefðbundið fyrir slíkar veislur. 

Baldwin klæddist svörtum blúndunærfötum í veislunni og var með bleika hárkollu. Skemmtilegar veitingar voru í boði, þar á meðal bleikur eftirréttur með orðunum „Fyrsti strippklúbbur barnsins“. Þá voru hamborgarar og franskar frá Monty's Good Burger og kaka.

Á meðal gesta voru leikkonan Hilary Duff, Sailor Brinkley Cook, Rumer Willis og fleiri stjörnur sem mættu með peningaseðla til að veifa um.

Samsett mynd
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert