Fögnuðu eins árs afmæli frumburðarins

A$AP Rocky og Rihanna ásamt frumburði sínum, RZA Athelston Mayers.
A$AP Rocky og Rihanna ásamt frumburði sínum, RZA Athelston Mayers. Skjáskot/Instagram

Tónlistarparið A$AP Rocky og Rihanna fögnuðu eins árs afmæli frumburðarins síðastliðna helgi, en sonur þeirra kom í heiminn hinn 13. maí 2022.

Í síðustu viku greindu Rocky og Rihanna loksins frá nafni sonar síns, en þau höfðu haldið því leyndu í tæplega ár. Soninn nefndu þau RZA Athelston Mayers eftir framleiðandanum og rapparanum RZA, leiðtoga hljómsveitarinnar Wu-Tang Clan.

Rocky deildi fallegri myndaröð af fjölskyldunni í tilefni dagsins, en þar fá aðdáendur innsýn í líf fjölskyldunnar sem mun stækka í ár þar sem Rihanna er ófrísk af öðru barni þeirra. Hún kom öllum á óvart þegar hún tilkynnti óléttuna í beinni í hálfleik Ofurskálar NFL-deildarinnar í febrúar síðastliðnum.

View this post on Instagram

A post shared by A$AP ROCKY (@asaprocky)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert