Dóttir Hildar og Sigurðar komin með nafn

Hildur María Leifsdóttir og Sigurður Jakob Helgason urðu foreldrar í …
Hildur María Leifsdóttir og Sigurður Jakob Helgason urðu foreldrar í febrúar síðastliðnum. Ljósmynd/Mummi Lú

Fyrrverandi fegurðardrottningin og handboltakonan Hildur María Leifsdóttir og kærasti hennar Sigurður Jakob Helgason eignuðust dóttur þann 4. febrúar síðastliðinn. Nú er hún komin með nafn. 

Stúlkan er fyrsta barn parsins og kom í heiminn fjórum vikum fyrir settan dag. Parið deildi gleðifregnunum í sameiginlegri færslu þar sem þau sögðu frá aðdraganda fæðingarinnar.

Um helgina tilkynntu þau nafn dótturinnar í sameiginlegri færslu á Instagram, en hún fékk nafnið Lína María Sigurðardóttir. Með færslunni birtu þau fallegar myndir úr skírnarveislunni þar sem boðið var upp á girnilegar kræsingar.

Fjölskylduvefurinn óskar þeim innilega til hamingju með nafnið!

View this post on Instagram

A post shared by Hildur Maria (@hildurmariaa)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert