Edda Sif og Vilhjálmur eiga von á barni

Edda Sif Pálsdóttir og Vilhjálmur Siggeirsson eiga von á sínu …
Edda Sif Pálsdóttir og Vilhjálmur Siggeirsson eiga von á sínu öðru barni. Skjáskot/Instagram

Fjölmiðlakonan Edda Sif Pálsdóttir á von á sínu öðru barni með unnusta sínum, Vilhjálmi Siggeirssyni verkefnastjóra hjá Háskólanum í Reykjavík. Fyrir eiga þau Vilhjálmur son sem er fæddur árið 2020. 

„Elsku besti kallinn okkar er svo spenntur fyrir nýju hlutverki í september,“ skrifaði Edda Sif á Facebook. Birti hún einnig myndir af syni þeirra sem er að verða stóri bróðir. 

Ástin kviknaði á Rúv en þau Edda Sif og Vilhjálmur störfuðu þar saman. Vilhjálmur hefur fært sig um set en Edda Sif heldur áfram að færa þjóðinni íþróttafréttir.

Fjölskylduvefurinn óskar Eddu Sif og Vilhjálmi til hamingju með óléttuna!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert