Boy George sakfelldur

Boy George sést hér yfigefa dómshúsið í London í síðustu …
Boy George sést hér yfigefa dómshúsið í London í síðustu viku. Reuters

Dómstóll í Lundúnum sakfelldi í dag breska popparann Boy George fyrir að hafa haldið norskum fylgdarpilti föngnum heima hjá sér. 

Boy George, sem er 47 ára og fyrrum söngvari Culture Club, var sakaður um að hafa handjárnað 29 ára gamlan Norðmann, Audun Carlsen, og barið hann með járnkeðju þegar hann reyndi að flýja íbúð popparans í kjölfar nektarmyndartöku.

George, sem heitir réttu nafni George O'Dowd, játaði að hafa handjárnað Carlsen í apríl árið 2007. Hann sagði hins vegar að hann hefði gripið til þessa ráðs eftir að grunsemdir vöknuðu hjá honum að Norðmaðurinn hafi átt við tölvuna hans og náð þaðan ljósmyndum.

Carlsen segir þetta vera tilbúning. Hann hafi verið færður í handjárn vegna þess að George hafi viljað refsa honum fyrir að vilja ekki stunda með honum kynmök.

Dómur yfir Boy George verður kveðinn upp í janúar.

Norðmaðurinn Audun Carlsen.
Norðmaðurinn Audun Carlsen. Reuters
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes