Karl Rove hlustaði á íslenskar sögur í æsku

Karl Rove og George W. Bush þegar allt lék í …
Karl Rove og George W. Bush þegar allt lék í lyndi.

Karl Rove, sem um tíma var áhrifamesti ráðgjafi Georges W. Bush, fyrrum Bandaríkjaforseta, er af norskum ættum og segir í viðtali við AP fréttastofuna að hann kunni að meta allt sem frá Noregi kemur - nema lútfisk. Fram kemur að faðir Rove las fyrir hann norskar og íslenskar sögur í æsku.

„Það þarf áunninn smekk til að geta borðað mat, þar sem aðalhráefnið er lútur," segir Rove. 

Rove segir að Louis stjúpfaðir sinn hafi verið af norskum ættum og sjálfur eigi hann bróður og frændur sem heiti Olaf. 

Ráðgjafanum hefur verið boðið til Norður-Dakóta á norska hausthátíð og þar á að taka hann inn í norrænu frægðarhöllina svonefndu. AP segir, að skiptar skoðanir séu um þetta meðal demókrata í ríkinu. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes