Martin Sheen segir son sinn hugrakkan

Leikarinn Martin Sheen í hlutverki forseta Bandaríkjanna.
Leikarinn Martin Sheen í hlutverki forseta Bandaríkjanna. mbl.is/stilla

Fjölmiðlafárið í kringum Charlie Sheen ætlar engan endi að taka, en hann greindi frá því í vikunni að hann sé smitaður af HIV.

Nú hefur faðir Sheen, leikarinn Martin Sheen, tjáð sig um opinberun sonarins sem hann segir bera vitni um mikið hugrekki. Contactmusic greindi frá þessu.

„Hann hefur verið á leiðinni að greina frá þessu í marga mánuði, og við hvöttum hann til að gera það.“

„Hann hætti þó ítrekað við, ég býst við að þetta sé líkt því að mæta í eigin aftöku.“

„Þetta er það erfiðasta sem hann hefur nokkru sinni gert.“

Sheen eldri var greinilega mikið niðri fyrir þar sem hann lýsti því hvernig það væri að eiga son sem berst við fíknisjúkdóma.

„Ég sá hann á laugardagskvöld, ég og eiginkona mín fórum að hitta hann, til að gera honum ljóst að við stöndum með honum og spyrja hvort hann vildi að ég kæmi með honum í viðtalið. En hann sagði að hann þyrfti að gera þetta einn.“

„Sem faðir þori ég að veðja að ef ég myndi spyrja hverjir hér inni eiga börn, maka, frænkur eða frændur sem eru að berjast við eiturlyfja- eða áfengisfíkn myndu allir rétta upp hönd.“

Frétt mbl.is: Lét bólfélagana skrifa undir þagnareið

Frétt mbl.is: Charlie Sheen: „Ég er með HIV“

Leikarinn Charlie Sheen opinberaði á dögunum að hann sé smitaður …
Leikarinn Charlie Sheen opinberaði á dögunum að hann sé smitaður af HIV. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er sannleikskorn í því að hálfnað er verk þá hafið er. Þú kemur miklu í verk í dag og nýtur góðs af styrk annarra.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er sannleikskorn í því að hálfnað er verk þá hafið er. Þú kemur miklu í verk í dag og nýtur góðs af styrk annarra.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir