Erlendir fréttamiðlar velta því nú fyrir sér hvort söngkonan Miley Cyrus og leikarinn Liam Hemsworth séu búin að gifta sig. Samkvæmt sögusögnum fór athöfnin fram yfir jólahátíðina í Ástralíu, heimalandi leikarans.
Parið var áður trúlofað en sleit henni árið 2014. Í janúar var svo greint frá því að þau væru að hittast á ný og talið að þau væru flutt inn saman. Sáust þau meðal annars saman í ástralska strandbænum Byron Bay um jól og áramóti og mátti sjá þau faðmast og kyssast á tónlistarhátíð í byrjun janúar. Voru þau sögð hafa verið með fjölskyldu Hemsworth.
Slúðurpressan heldur því nú fram að yfir hátíðirnar hafi verið tekin skyndiákvörðun um giftingu og var asinn svo mikill að fjölskylda Cyrus hafði ekki ráðrúm til að fljúga til Ástralíu og vera viðstödd athöfnina.