Fer fram á rúmar 6 milljónir á mánuði

Skilnaður Johnny Depp og Amber Heard er orðinn fremur hatrammur.
Skilnaður Johnny Depp og Amber Heard er orðinn fremur hatrammur. AFP

Skilnaður Johnny Depp og leikkonunnar Amber Heard hefur mikið verið á milli tannanna á fólki undanfarið.

Leikkonan sótti um skilnað á dögunum og fór í kjölfarið fram á nálgunarbann á hendur Depp sem hún segir hafa beitt sig líkamlegu og andlegu ofbeldi á meðan sambandi þeirra stóð. Dómstólar staðfestu síðar að leikarinn þyrfti að halda sig fjarri Heard.

Leikkonan fer fram á að Depp greiði henni mánaðarlega 50.000 Bandaríkjadali í framfærslu, sem samsvarar rúmum sex milljónum íslenskra króna. Depp hefur neitað að verða við óskum Heard, en að sögn gerðu þau ekki með sér kaupmála áður en þau gengu í hjónaband.

Frétt mbl.is: Depp kominn með stjörnulögfræðing

Samkvæmt umfjöllun Mirror er auður Depps er metinn á um það bil 400 milljónir Bandaríkjadala, sem samsvarar rúmum 50 milljörðum íslenskra króna. Samkvæmt Forbes þénaði leikarinn 30 milljónir dollara á síðasta ári, eða rúmlega 3,7 milljarða íslenskra króna. Þá er hann einnig talinn hafa samið um að fá greiddar 95 milljónir Bandaríkjadala fyrir leik í Pirates of the Caribbeans: Dead Men Tell no Tales, sem frumsýnd verður á næsta ári.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson