Katy Perry og Orlando Bloom hætt saman

Katy Perry.
Katy Perry. mbl.is/AFP

Katy Perry og Orlando Bloom eru hætt saman eftir eins árs samband. Parið stillti sér upp saman fyrir framan ljósmyndara í Vanity Fair Óskarsverðalaunapartíinu síðastliðinn sunnudag.  The People greinir frá því að viðstöddum þóttu þau fjarlæg hvort öðru og eyddu litlum tíma saman. Parið hefur nú gefið út sameiginlega yfirlýsingu þar sem kemur fram að þau ætla að gefa hvort öðru pásu.  

Söngkonan og Lord of the Rings leikarinn hafa eytt miklum tíma í sundur á þessu ári vegna anna. Bloom var að vinna í Nígeríu á vegum UNICEF og Perry hefur verið upptekin við að kynna nýjasta smellinn sinn Chained to the Rhythm.

Sambandið virtist þó vera á góðri siglingu eftir að þau byrjuðu að stinga saman nefjum í janúar 2016. Í ágúst voru sögusagnir um að trúlofun væri á leiðinni. Enda Katy Perry eina konan sem Orlanda Bloom hefur verið í alvarlegu sambandi með síðan að hann skildi við fyrirsætuna Miröndu Kerr árið 2013, en saman eiga þau soninn Flynn 6 ára.

Orlando Bloom lét mynda sig einan í teiti Vanity Fair.
Orlando Bloom lét mynda sig einan í teiti Vanity Fair. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er engin ástæða til þess að láta hugfallast, þótt allt gangi ekki samkvæmt áætlun. Málið er bara að halda ró sinni, hvað sem á dynur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Anna Sundbeck Klav
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er engin ástæða til þess að láta hugfallast, þótt allt gangi ekki samkvæmt áætlun. Málið er bara að halda ró sinni, hvað sem á dynur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Anna Sundbeck Klav