Tökum á dramatísku spennumyndinni Mihkel eftir Ara Alexander Ergis Magnússon er nýlokið í Eistlandi, en áætlað er að frumsýna hana næsta vetur. Samkvæmt upplýsingum frá aðstandendum byggist myndin lauslega á líkfundarmálinu á Neskaupstað árið 2004 þar sem tveir Íslendingar höfðu skipulagt smygl til landsins ásamt eiturlyfjahring í Austur-Evrópu.
Fyrra tökutímabil myndarinnar hófst 14. nóvember og taka fór fram í Reykjavík, Kópavogi, Keflavík og Djúpavogi. Tökum í Eistlandi lauk um síðustu helgi, en tökuliðið var við vinnu á Kaberneeme-ströndinni rétt fyrir utan Tallinn, í miðborg Tallinn og í Narva við landamæri Rússlands.
Með aðalhlutverk fara Tómas Lemarquis og Atli Rafn Sigurðarson ásamt eistnesku leikurunum Paaru Oja og Kasper Velberg en þeir „hafa báðir mikla reynslu sem leikarar og hafa unnið til fjölda verðlauna í kvikmyndabransanum,“ segir í tilkynningu.
Leifur B. Dagfinnsson og Kristinn Þórðarson hjá Truenorth framleiða myndina ásamt Friðrik Þór Friðrikssyni. Meðframleiðendur myndarinnar eru Evelin Soosar-Pentilla hjá Amrion í Eistlandi og Egil Odergard hjá Filmhuset í Noregi.