Spotify greindi frá því að Of Monsters and Men sé fyrsta íslenska hljómsveitin sem nær milljarðshlustun á veitunni.
Tæplega fjórar og hálf milljón hlusta á hljómsveitina í hverjum mánuði og segir Spotify hljómsveitina greinilega hafa eignast aðdáendur út um allan heim.
Hljómsveitin er vinsælust í Bandaríkjunum, þar á eftir koma Bretland og Brasilía. Lagið Little Talks er vinsælasta lagið þeirra en þar á eftir koma Dirty Paws og Mountain Sounds.