Kynntist unnustanum á Instagram

Mandy Moore gengur vel þessa dagana.
Mandy Moore gengur vel þessa dagana. mbl.is/AFP

Leikkonan Mandy Moore viðurkenndi í viðtali við The People að hún hefði kynnst unnusta sínum, tónlistarmanninum Taylor Goldsmith, í gegnum Instagram. 

This Is Us-stjarnan fer ekki aðrar leiðir en aðdáendur hennar og notar samfélagsmiðla í tilhugalífinu. Moore tók myndir af plötu hljómsveitarinnar Dawes sem Goldsmith er í og birti á Instagram og það vakti athygli Goldsmith. 

Eftir það byrjuðu þau að senda hvort öðru tölvupósta, að lokum fóru þau á stefnumót og þá varð ekki aftur snúið. „Við urðum ástfangin áður en við í rauninni héldumst í hendur eða kysstumst eða eitthvað. Það var frábært,“ sagði Moore um tilhugalífið. 

Parið trúlofaði sig í september en ekki er von á stórri Hollywood-veislu þar sem Moore lýsir þeim báðum sem frekar rólegu fólki. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Gættu þín á hleypidómum varðandi þá sem eru öðru vísi en þú. Taktu til þín það hól sem þú færð því þú átt það skilið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Gættu þín á hleypidómum varðandi þá sem eru öðru vísi en þú. Taktu til þín það hól sem þú færð því þú átt það skilið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir