Dóttir leikkonunnar Blake Lively skilur ekki fatastíl móður sinnar en hún taldi mömmu sína hafa gleymt buxunum sínum þegar hún var á leiðinni út af hóteli í New York á dögunum.
Lively er í New York og tískuvikan þar í borg í fullum gangi. „Ó nei mamma, þú gleymdir buxunum,“ kallaði dóttir hennar á hana þegar dyrnar á lyftunni voru að lokast. Lively var í stuttum kjól sem virtist frekar líta út fyrir að vera stór peysa en kjóll og áhyggjur dóttur hennar því vel skiljanlegar.
True story: As the elevator closed my daughter yelled after me, “Oh no mama, you forgot your pants!”
A post shared by Blake Lively (@blakelively) on Feb 15, 2018 at 7:31pm PST
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem stjörnubarn hefur áhyggjur af buxnaleysi móður sinnar. Í fyrra greindi Jennifer Lopez frá því að sonur hennar hefði beðið hana um að fara í buxur.