„Þegar þú ert 19 ára þá veistu allt“

Lionel Richie lítur ekki á Scott Disick sem framtíðartengdason.
Lionel Richie lítur ekki á Scott Disick sem framtíðartengdason. AFP

Tónlistarmaðurinn Lionel Richie gerir ekki ráð fyrir því að ólátabelgurinn Scott Disick verði tengdasonur sinn til framtíðar. Disick er 34 ára og hefur verið að slá sér upp með hinni 19 ára gömlu Sofiu Richie síðan síðasta sumar. 

Page Six greinir frá því að tónlistarmaðurinn hafi látið það út úr sér í viðtali að sambandið væri bara ákveðið tímabil. „Hún er 19 ára. Þegar þú ert 19 ára þá veistu allt. Er þetta að fara vera líf hennar? Ég veit það ekki en núna er þetta bara tímabil og ég ætla láta lítið fyrir mér fara út í horni, fá mér góðan drykk og segja ekki mikið,“ sagði Richie um samband dóttur sinnar. 

Disick sem er þekktur fyrir drykkjulæti og kvennafar sitt á þrjú ung börn með raunveruleikastjörnunni Kourtney Kardashian. All Night Long-söngvarinn segir þó Disick vera indælan mann. „Þegar þú hangir í kringum raunveruleikaheiminn, hver veit hvað þú ert virkilega að gera? Kardashian-vélin er vel smurð vél.“

Sofia Richie.
Sofia Richie. AFP
Kourtney Kardashian, Scott Disick og börn þeirra.
Kourtney Kardashian, Scott Disick og börn þeirra. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson