Channing Tatum að skilja

Channing Tatum og Jenna Dewan Tatum.
Channing Tatum og Jenna Dewan Tatum. mbl

Leikarinn Channing Tatum og þáttastjórnandinn Jenna Dewan Tatum tilkynntu í gær um skilnað sinn. Þau hafa verið gift í tæp níu ár. 

Parið birti sameiginlega yfirlýsingu um málið á Instagram. „Við urðum mjög ástfangin fyrir svo mörgum árum og hefur samleið okkar verið töfrum líkust. Nákvæmlega ekkert hefur breyst hvað varðar ást okkar hvors til annars en ástin er fallegt ævintýri sem hefur nú fært okkur hvort í sína áttina,“ sagði m.a. í yfirlýsingunni.

Þau segja að hvorki leyndarmál né lostafullt athæfi hafi orðið til þess að þau tóku þessa ákvörðun.

Parið kynntist við tökur myndarinnar Step Up árið 2006. Þau giftu sig árið 2009 og eiga eina dóttur. 

Dewan Tatum er nú stjórnandi þáttar NBC, World Dance. Tatum vinnur að talsetningu teiknimyndar. 

Frétt CNN um málið.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er sannleikskorn í því að hálfnað er verk þá hafið er. Þú kemur miklu í verk í dag og nýtur góðs af styrk annarra.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er sannleikskorn í því að hálfnað er verk þá hafið er. Þú kemur miklu í verk í dag og nýtur góðs af styrk annarra.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir