Kanye West hefur tilkynnt að hann ætli að gefa út tvær nýjar plötur.
Rapparinn hvarf af sjónarsviðinu fyrir einu og hálfu ári síðan af völdum andlegra veikinda, að því talið er.
West, sem hefur líkt sjálfum sér við sjálfan Michaelangelo, tísti að ný, sjö laga plata væri væntanleg 1. júní og önnur viku síðar sem hann gerði í samstarfi við Kid Cudi.
West, sem sneri aftur á Twitter fyrr í vikunni, einu ári eftir að hafa lokað aðgangi sínum að samfélagsmiðlinum, hafði lítið meira að segja um plöturnar tvær.
Hann sagði þó að verkefnið með Kid Cudi myndi heita Kids See Ghosts.
me and Cudi album June 8th
— KANYE WEST (@kanyewest) April 19, 2018
my album is 7 songs
— KANYE WEST (@kanyewest) April 19, 2018