Leikkonan Scarlett Johansson tók nýja kærastann með sér á frumsýningu Avangers: Infinity War í gær, mánudag. Sá heppni heitir Colin Jost og skrifar fyrir skemmtiþáttinn vinsæla Saturday Night Live.
Parið geislaði á rauða dreglinum en þetta er í fyrsta skipti sem þau koma fram saman opinberlega. Fréttir bárust af sambandi þeirra í byrjun síðasta sumars svo nokkur alvara virðist vera á ferð.
Johansson á dótturina Rose Dorothy Dauriac þriggja ára með hinum franska Romain Dauriac. Johansson sótti um skilnað frá honum síðasta vetur. Leikkonan var áður gift leikaranum Ryan Raynolds frá 2008 til 2011.